Landsbankinn er stærsta fjármálafyrirtækið á Íslandi og veitir einstaklingum, fyrirtækjum og fjárfestum um allt land trausta og alhliða fjármálaþjónustu sem byggir á langtíma viðskiptasamböndum. Hagnaður Landsbankans á árinu 2014 nam 29,7 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 28,8 milljarða á árinu 2013. Arðsemi eiginfjár eftir skatta á árinu 2014 var 12,5%.
Einstaklingar í viðskiptum við Landsbankann | 113.500 |
Fyrirtæki í viðskiptum við Landsbankann | 11.096 |
Útibú og afgreiðslur í árslok 2014 | 32 |
Fjöldi hraðbanka | 65 |
Stöðugildi í árslok 2014 | 1.126 |